Jólagjafainnpökkun

Jólagjafainnpökkun

Hver sagði að það þyrfti að vera leiðinlegt að pakka inn jólagjöfunum?

Á Hótel Eyju breytum við jólaundirbúningnum í notalega samverustund! Safnaðu saman vinum, fjölskyldu eða samstarfsfólki og njóttu þess að pakka inn jólagjöfunum í hlýlegu umhverfi þar sem allt er tilbúið fyrir þig.

Minna stress, meiri jólastemning

Gleymdu flæktum borðum, týndum skærum og jólapappír út um allt!

Við bjóðum upp á notalega einkaaðstöðu í tvær klukkustundir þar sem þú finnur allt sem þarf til að gera jólapakkana sérstaklega fallega.

Jólapappír, borðar, merkimiðar og skraut bíða þín á staðnum. Á barnum er svo hægt að kaupa ljúffenga drykki og léttar veitingar til að gera stundina enn notalegri.

Fallegir pakkar með umhverfið í huga

Við leggjum áherslu á vandaðan efnivið og umhverfisvænni valkosti. Allt frá jólapappírnum að síðustu slaufunni er valið af alúð, svo þú getir notið stundarinnar með góðri samvisku.


Allt sem þú þarft á einum stað

  • Verð: 3.990 kr. á mann

  • Tími: 2 klukkustundir

  • Fjöldi: Allt að 15 manns í einkarými

  • Innifalið: Jólapappír, borðar, merkimiðar, skraut og allt sem þarf til innpökkunar

  • Veitingar: Drykkir og léttar veitingar til sölu á barnum

  • Staðsetning: Hótel Eyja, Brautarholti 10–14, Reykjavík

Þú þarft aðeins að mæta með jólagjafirnar og góða skapið!

Gerðu meira úr jólaundirbúningnum

Hvort sem um er að ræða vinkonukvöld, fjölskyldustund eða öðruvísi jólagleði með samstarfsfólkinu er jólapakkastuðið tilvalin leið til að njóta aðventunnar saman.

Farðu heim með fallega innpakkaðar gjafir, einu verkefni færra á jólalistanum og skemmtilegar minningar í farteskinu.

Tilbúin í jólapakkastuð?

Safnaðu saman þínu fólki og bókaðu jólapakkastuð á Hótel Eyju!


BÓKA NÚNA!

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved