Upplýsingar & reglur

Upplýsingar & reglur

Velkomin á Hótel Eyja

Það gleður okkur að fá þig til okkar! Á Hótel Eyja haldast þægindi og sjálfbærni í hendur. Allt frá úthugsuðum herbergjunum til þess hvernig við berum fram morgunverðinn er hvert smáatriði valið til að hlífa jörðinni og gera dvöl þína ógleymanlega.

Innritun & útritun

Innritun á Hótel Eyja hefst kl. 15:00 – í tæka tíð til að koma sér rólega fyrir. Kemurðu snemma? Við athugum með ánægju hvort herbergið þitt sé tilbúið og hægt er að óska eftir snemmbúinni innritun gegn aukagjaldi, háð framboði.


Við brottför biðjum við þig vinsamlega að útrita þig fyrir kl. 11:00. Ef þig langar ekki alveg strax að kveðja er einnig hægt að óska eftir síðbúinni útritun gegn aukagjaldi, háð framboði.

Umhverfisráð fyrir grænni dvöl

Hótel Eyja er stolt af því að hafa hlotið Green Globe-vottun – eina hótelið á Íslandi með sjálfbærnivottun á þessu stigi.


Vottunin er hluti af víðtækari skuldbindingu allra Guldsmeden-hótelanna til sjálfbærni, þar sem umhverfisábyrgð er kjarninn í öllu sem við gerum.

Lyklakort: Vinsamlegast taktu lyklakortið með þér þegar þú yfirgefur herbergið og skildu það ekki eftir í rafmagnsraufinni að óþörfu.

Vatnsnotkun: Hjálpaðu okkur að spara vatn með því að skrúfa fyrir kranann á meðan þú burstar tennurnar eða rakar þig og með því að hafa sturturnar stuttar.

Flokkun úrgangs: Endilega notaðu endurvinnslutunnurnar í sameiginlegum rýmum til að flokka úrganginn – margt smátt gerir eitt stórt!

100% endurnýjanleg orka: Allt rafmagn okkar kemur frá hreinum, endurnýjanlegum orkugjöfum.

Lífrænar snyrtivörur & Fair Trade-kaffi: Njóttu náttúrulegra baðvara og siðferðilega fengins kaffis á herberginu.

Síað íslenskt kranavatn: Alltaf ferskt, alltaf án plasts og algjörlega ókeypis. Íslenskt kranavatn er með því hreinasta í heimi og kemur beint úr náttúrulegum lindum og jöklum. Það er óhætt að drekka það beint úr krananum og það þarfnast hvorki frekari síunar né átöppunar – betra fyrir líkamann og jörðina.

Þrifastefna

Á Hótel Eyja leggjum við okkur fram um að fara vel með umhverfið og liður í því er að draga úr óþarfa þrifum á meðan á dvöl þinni stendur. Sem umhverfisvænt hótel gerum við okkar besta til að lágmarka notkun auðlinda á borð við hreinsiefni og vatn. Þetta er ekki skylda, aðeins vinsamleg beiðni um að slást í för með okkur í átt að aukinni sjálfbærni. 

Við innritun, eftir að við höfum kynnt fyrir þér léttþrifafyrirkomulagið okkar, spyrjum við hvort þú sért sátt/ur við það. Flestir gestir okkar stökkva glaðir á græna vagninn með okkur!

Ef eitthvað kemur upp á eða þú skiptir um skoðun, láttu okkur þá endilega vita. Ef þú þarft á þrifum, auka handklæðum eða öðru smálegu að halda skaltu ekki hika við að spyrja í móttökunni eða ræða við starfsfólkið á þinni hæð,  við aðstoðum með ánægju.

(fyrir 2–3 nátta dvöl) Við bjóðum því ekki upp á þrif á herberginu þínu meðan á dvölinni stendur nema þú óskir þess sérstaklega. Ef þig vantar smáhluti á borð við handklæði skaltu endilega hafa samband við okkur í móttökunni eða við starfsfólk ræstinga á þinni hæð. Hentar það þér?

(fyrir 4-5 nátta dvöl) Við bjóðum því aðeins upp á þrif á herberginu einu sinni meðan á dvölinni stendur, nema þú óskir annars. Ef þig vantar smáhluti á borð við handklæði geturðu endilega leitað til okkar í móttökunni eða til starfsfólks í þrifum á þinni hæð. Hentar það þér?

(fyrir 6-7 nátta dvöl) Við bjóðum því aðeins upp á þrif á herberginu tvisvar meðan á dvölinni stendur, nema þú óskir annars. Ef þig vantar smáhluti á borð við handklæði geturðu endilega leitað til okkar í móttökunni eða til starfsfólks í þrifum á þinni hæð. Hentar það þér? 

Handklæði á gólfinu?

Skilaboðin hafa borist! Handklæði á gólfinu þýða „vinsamlegast skiptið um mig“. Ef þú vilt nota þau aftur skaltu einfaldlega hengja þau upp  og við þökkum þér fyrir að spara vatn.

Morgunverður, veitingastaður & bar

Morgunverður

Byrjaðu daginn á ljúffengum lífrænum morgunverði sem borinn er fram á björtum og notalegum veitingastað okkar á jarðhæð.
Virka daga: 7:00–10:00
Um helgar: 7:00–11:00
Allt er valið af kostgæfni, allt frá nýbökuðu brauði og íslensku skyri til jurtarétta og sanngirnisvottaðs kaffis.

Bar & setustofa

Láttu líða úr þér á notalega barnum í anddyrinu – fullkomnum stað fyrir glas af lífrænu víni, íslenskan bjór eða kokteil með íslenskum innblæstri. Við styðjum náttúrulega og siðferðilega framleiðendur og leggjum áherslu á afslappað og stílhreint andrúmsloft. Opið alla daga fram eftir kvöldi. Við höfum dregið úr eldhúsinu á kvöldin – það sparar smá orku og mikla fyrirhöfn.

Við berum þó enn fram heitar súpur, góðar samlokur og enn betri stemningu.

Gleðistund: 16:00-19:00 alla daga. 

Vantar þig eitthvað?

Starfsfólkið okkar er til staðar fyrir þig allan sólarhringinn. Komdu bara við í móttökunni hvenær sem er. Við elskum spurningar, sérstaklega um góð ráð í Reykjavík eða hvar bestu heitu laugina er að finna.

Reglur um börn

Börn til og með 11 ára aldri fá 30% afslátt af aukarúmi. Aukarúm komast aðeins fyrir í Superior tveggja manna herbergjum.

Barnarúm fást fyrir 6.500 ISK fyrir dvölina.

Börn 5–12 ára greiða 1.995 ISK fyrir morgunverð

Skemmdir og horfnir munir

Gestir bera ábyrgð á að greiða fyrir allar skemmdir sem verða á meðan á dvöl þeirra stendur og fyrir hluti sem vantar.

Reykingabann

Hótelið okkar er 100% reyklaust. Reykingar eru hvorki leyfðar í herbergjum né í sameiginlegum rýmum innandyra. Sé þessi regla ekki virt verður innheimt sérstakt þrifagjald til að gera herbergið tilbúið fyrir næsta gest.

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved

Upplifðu Ísland áreynslulaust

Hótel á vegum

Merki Hamar Hotel

© 2026 Eyja Hotel - All rights reserved