Allar bókanir skulu vera skriflegar. Hótel Eyja staðfestir bókunina skriflega. Vinsamlegast látið allar nauðsynlegar upplýsingar fylgja svo við getum tryggt sem mesta skilvirkni.
Allar bókanir sem gerðar eru í gegnum Travia verður að afbóka beint í gegnum Travia. Allar afbókanir skulu vera skriflegar eða gerðar beint í gegnum Travia.
Nettóverð eru trúnaðarmál. Ekki má birta þau á netinu eða á bókunarvélum á netinu.
Sértilboð
10% afsláttur þegar bókaðar eru 5 nætur eða fleiri.
15% afsláttur þegar bókaðar eru 7 nætur eða fleiri.
15% afsláttur þegar bókaðar eru 5 nætur eða fleiri. Gildir 16. september – 31. október & 1. maí – 31. maí.
15% afsláttur þegar bókaðar eru 4 nætur eða fleiri. Gildir 1. nóvember – 27. desember & 3. janúar – 31. janúar.
Einstaklingsbókanir (1-4 herbergi)
Einstaklingsbókanir má afbóka án endurgjalds allt að 72 klukkustundum fyrir komu.
Bókanir sem afbókaðar eru með 72 klukkustunda fyrirvara eða minna verða gjaldfærðar að fullu.
Hópbókanir (5-15 herbergi)
Hægt er að afbóka með 4 vikna fyrirvara án afbókunargjalds.
Sé afbókað með minna en 4 vikna fyrirvara er fullt verð innheimt.
Hópbókanir (16-30 herbergi)
Hægt er að afbóka án afbókunargjalds með 8 vikna fyrirvara.
Sé afbókað með minna en 6 vikna fyrirvara er innheimt 50 % afbókunargjald.
Afbókanir sem berast með minna en 6 vikna fyrirvara verða gjaldfærðar að fullu.
Hótel Eyja þarf að fá upplýsingar um stöðu og nafnalista eigi síðar en 2 vikum fyrir komudag.
Fyrir stærri hópa (16 herbergi eða fleiri) áskilur Hótel Eyja sér rétt til að innheimta 20% staðfestingargjald við bókun til að staðfesta pöntunina.







